Sjóðnum Blind börn á Íslandi færðar jólagjafir

 

Núna á aðventunni hafa sjóðnum blind börn á Íslandi borist höfðinglegar gjafir. Birtingahúsið ehf.,  gaf sjóðnum 100 þúsund krónur í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólakort þetta árið og Laugardagskaffifélagar á Hjallabraut 33 í Hafnarfirði færðu sjóðnum 130 þúsund krónur að gjöf í anda þessa fallega  ljóðs eftir Hákon Aðalsteinsson og.


Vökvaðu kærleikans viðkvæmu rós,

þá veitist þér andlegur styrkur.

Kveiktu svo örlítið aðventuljós,

þá eyðist þitt skammdegismyrkur

Stjórn sjóðsins færir þessum aðilum sérstakar þakkir og öllum velunnurum sjóðsins kærleiksríkar jóla og nýárskveður með kærum þökkum fyrir allan stuðning og velvild á liðnum árum.