Leiðsöguhundadagatal

Dagatal þetta er gefið út af Blindrafélaginu, samtökum blindra og sjónskertra á Íslandi ár hvert. Tilgangurinn með útgáfu dagatalsins er að fjármagna kaup á leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga.

Hægt er að versla dagatal hér

Á Íslandi eru starfandi sextán leiðsöguhundar fyrir blinda og sjónskerta og mikilvægt er að viðhalda verkefninu vel. Þörfin er til staðar, bæði fyrir nýja notendur og þá sem missa hundana sína á eftirlaun. Þjálfun leiðsöguhunds er mjög sérhæfð og tímafrek.

Leiðsöguhundar hafa sömu stöðu og margir vinnuhundar líkt og lögreglu- og björgunarhundar þ.e. þeir mega fara um allt.

Hundarnir eru gríðarlega öflugt hjálpartæki og veita notendum mikið frelsi og öryggi. Þeir aðstoða blinda og sjónskerta að komast leiðar sinnar á öruggan og sjálfstæðan hátt. Leiðsöguhundar eru sérþjálfaðir m.a. í því að forðast hindranir á gönguleið, bæði jörðu og höfuðhæð, hindra að notandi hrasi, stöðva við öll gatnamót, finna staura við gangbrautir, bekki og laus sæti á biðstofum og fylgja eftir fjöldan allan af skipunum notenda sinna.

Hver leiðsöguhundur getur unnið á bilinu 8-10 ár og allan þann tíma, á hverjum einasta degi, bætir hundurinn lífsgæði notanda síns umtalsvert.

Velunnarar Blindrafélagsins fá þetta dagatal sent til sín og um leið val um að styðja við leiðsöguhundaverkefnið í gegnum heimabankann sinn.

 Leiðsöguhundar