Höfðingleg gjöf til Blindrafélagsins!

Fyrir skömmu barst Blindrafélaginu höfðingleg gjöf að upphæð 2 milljónir króna. Sú sem sýndi félaginu þennan rausnarskap heitir Anna Ingibjörg Helgadóttir. Anna Ingibjörg er félagsmaður í Blindrafélaginu. Hún er níræð að aldri og býr á Hrafnistu í Reykjavík.

Blindrafélagið kann Önnu Ingibjörgu miklar þakkir fyrir hlýhuginn og rausnarskapinn.