Umsóknarfrestur rennur út 1 október

Síðast liðið vor úthlutaði sjóðurinn styrkjum í öllum styrktarflokkum. Upphæðum sem var úthlutað voru eftirfarandi::

A)   Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra. Samtals 6 umsóknir uppá 1.640.000 krón

B)  Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins. Samtals 3 umsóknir uppá 420.000 krónur.   

C) Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum og tölvubúnaði. Samtals 6 umsóknir uppá 600.000 krónur.

D) Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar. Samtals 3 umsóknir uppá 1.520.000 krónur.

Skipulagsskrá, úthlutunarreglur,umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar má nálgast hér.