Styrkir úr sjóðnum Blind börn á Íslandi

Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna allt að 18 ára aldri. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 15. október 2015.


Styrkir úr sjóðnum Blind börn á Íslandi

Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna allt að 18 ára aldri. Sjóðurinn veitir einungis styrki vegna atburða og/eða hluta sem eru annars ekki styrktir af almannatryggingum, félagsþjónustu sveitafélaga eða af öðrum stofnunum eða sjóðum sem koma að málum blindra og sjónskertra barna.

Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum vetrardaginn fyrsta 24. október  2015. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 15. október 2015.

Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða á netfangið kaisa@blind.is Umsóknir skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um. Stjórn sjóðsins hefur heimild til að úthluta allt að 70% af andvirði þess sem styrkt er. Sé styrks ekki vitjað innan árs fellur hann niður.