Styrktarsjóðurinn Stuðningur til sjálfstæðis auglýsir eftir styrkumsóknum

Stjórn Stuðnings til sjálfstæðis, styrktarsjóðs Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi, auglýsir eftir styrktarumsóknum. Umsóknarfrestur er til 1. október 2015. 

Veittir eru styrkir í 4 styrkjaflokkum, A, B, C og D:

A Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra.

B Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.

C Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum.

D Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar.

Fyrri styrkúthlutanir má sjá hér.

Umsækjendur er hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins, sem finna má hér.

Tengill inn á umsóknareyðublað er hér.

 

Stuðningur til sjálfstæðis – Styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi.

Sjóðurinn var stofnaður 23  mars  2011 með fimmtán milljón króna afmælisgjöf frá Blindravinafélagi Íslands til Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi, í tilefni af 70 ára afmæli Blindrafélagsins þann 19. ágúst 2009.

Þá tók sjóðurinn við Menntunarsjóði til blindrakennslu, er stofnaður var 3. maí 2007 til að styrkja fagfólk til sérnáms sem tengist kennslu og þjónustu við blinda og sjónskerta einstaklinga, og falla allar eignir Menntunarsjóðsins til þessa sjóðs við stofnun, jafnframt því sem sjóðurinn yfirtekur allar skuldbindingar Menntunarsjóðsins.

Námssjóður blindra, sem stofnaður var árið 1978 um dánargjöf Guðmundar Guðjónssonar, Ljósafossi, rennur einnig inn í sjóðinn sem og allar hans eignir.

Eftirstöðvar af söfnun Ungblindar, sem safnaðist með sölu geisladiska árin 2006 og 2007, sem hefur verið nýtt til hjálpartækjastyrkja, rennur einnig inn í sjóðinn.

Sjóðurinn er eign og í vörslu Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi.