Þar sem þetta er þriðji sunnudagur í aðventu þá munum við ganga sem leið liggur yfir Klambratún og klífa upp á Skólavörðuholtið og halda þaðan niður í bæ og skoða dýrðina sem vonandi verður komin á bæinn.
Munið að koma klædd í samræmi við veður og taka með ykkur gesti og góða skapið.
Hafið samband við Sjonna í síma 824 8820 eða á netfangið sjonni@grjotasel.net ef eitthvað er óljóst.
Sjáumst þann 11. kl 13:00 hress, kát og í gönguskapi.
Fyrir hönd Ferða- og útivistarnefndar Blindrafélagsins
Rósa Ragnarsdóttir og Sjonni (Sigurjón Einarsson)