Frá Ferða- og útivistarnefnd Blidrafélaagsins  



Á fundinn kemur Inga Geirsdóttir frá Skotgöngu í Skotlandi og mun hún kynna okkur það sem þau hafa uppá að bjóða fyrir okkur í gönguferðum næsta ár.
 
Nú þegar hafa félagar í Blindrafélaginu sýnt áhuga á tveimur gönguferðum, annars vegar til Tenerife á Canarý í vetur/vor (sjá www.skotganga.co.uk/tenerife) og hins vegar til Costa Brava á Spáni í september (sjá /www.skotganga.co.uk/costa-brava).
 
Við erum nokkur tengd Blindrafélaginu sem höfum farið í gönguferðir með Ingu hjá Skotgöngu og erum einróma um að þetta eru frábærar ferðir og fullt tillit tekið til okkar sérþarfa.
 
Hafið samband við Sjonna í síma 824 8820 eða á netfangið sjonni@grjotasel.net ef eitthvað er óljóst.
 
Sjáumst þann 7. kl 17:00 hress, kát og í ferðahug.
 
Fyrir hönd Ferða- og útivistarnefndar Blindrafélagsins

Sigurjón Einarsson