Lagabreytinga tillögur frá stjórn Blindrafélagsins fyrir aðalfund 2017.

Lagabreytinga tillögur frá stjórn Blindrafélagsins fyrir aðalfund 2017.

 
Flutningsmenn:  Sigþór U. Hallfreðsson formaður, Rósa María Hjörvar varaformaður, Baldur Snær Sigurðsson ritari, Sigríður Hlín Jónsdóttir gjaldkeri, Lilja Sveinsdóttir meðstjórnandi, Patrekur Andrés Axelsson varamaður og Elínborg Lárusdóttir varamaður.  
 

Á aðalfundi  Blindrafélagsins þann  19. mars 2016 var eftirfarandi ályktunartillaga samþykkt.:
„Aðalfundur Blindrafélagsins haldinn þann 19. mars 2016 felur stjórn félagsins að hefja vinnu við að endurskoða og móta lög, siðareglur og verklagsferla fyrir starfsemi Blindrafélagsins.
A) Endurskoða lög félagsins með það að markmiði að færa lögin betur að starfsemi félagsins, gera lögin skýrari og færa inn í þau venjur, hefðir og óskráðar reglur sem breið samstaða er um. Tillögur að nýjum lögum Blindrafélagsins skulu lagðar fyrir aðalfund félagsins 2017.
B)  Að gera tillögu að siðareglum Blindrafélagsins. Siðareglurnar skulu byggja á gildum Blindrafélagsins og meðal annars fjalla um ábyrgð allra þeirra, sem starfa á vettvangi félagsins og samskipti bæði inn á og út á við. Tillaga að nýjum siðareglum fái umfjöllun og staðfestingu félagsfundar Blindrafélagsins.
C)  Að setja niður verklagsferla fyrir starfsemi félagsins. Þar með talið fyrir stjórn félagsins, deildir, nefndir og skrifstofu. Við þessa vinnu verði lögð á það rík áhersla að kalla fram sjónarmið félagsmanna og starfsmanna og leita ráðgjafar fagfólks eftir því sem við á.
Strax í maí 2016 bauð stjórn félagsins til stefnumóts sem var opið öllum félagsmönnum. Á stefnumótinu, sem var vel sótt, var farið yfir þau verkefni sem aðalfundur fól stjórninni og leitað eftir afstöðu félagsmanna til þess sem máli skiptir við þessa vinnu. Í kjölfarið voru haldnir tveir félagsfundir, fræðsluerindi og spjallfundur þar sem að félagsmönum gáfust enn frekari tækifæri á að koma skoðunum sínum og sjónarmiðum á framfæri. Við þessa vinnu kom í ljós að mjög almenn samstað ríkir meðal félagsmanna um félagið og starfsemi þess
Nú þegar hafa siðareglur fyrir almenna félagsmenn, stjórn og starfsmenn og stjórnendur verið kynntar og staðfestar.Verkferla vinna á vettvangi stjórnar og skrifstofu er í gangi og í stöðugri endurskoðun.
Við vinnu sína að tillögum að lagabreytingum skoðaði stjórn þær lagabreytingar sem lágu fyrir seinasta aðalfundi, hlustað var eftir sjónarmiðum sem að fram komu á Stefnumóti félagsmanna þann 25 maí 2016, umræðum á tveimur félagsfundum og óformlegum spjallfundi. Að auki var litið til  ábendinga í skýrslu sannleiksnefndarinnar auk þess sem að ráðgjöf var sótt til lögmanns félagsins.
Það er einróma niðurstaða stjórnar að leggja til  eftirfarandi  breytingar og viðbætur á lögum Blindrafélagsins.:   
 
Tillaga að nýrri málsgrein við 4. gr.
„Stjórn Blindrafélagsins fer yfir umsóknir um félagsaðild og staðfestir eða hafnar.. Afgreiðslur stjórnar skulu staðfestar af aðalfundi Blindrafélagsins“.
Greinargerð:
Hér er um að ræða að staðfesta venju sem hefur verið iðkuð um margra ára skeið án þess að það sé skilgreint í lögum félagsins hvernig staðfesting félagsaðildar fer fram.

Breytingatillaga við 5. gr.
5. greinin er svohljóðandi:
„Aðrir en að ofan greinir geta gerst bakhjarlar Blindrafélagsins og hafa þeir málfrelsi og tillögurétt á fé­lags­­fundum. Bakhjarlar félagsins eru kjör­geng­ir til trún­aðarstarfa á vegum félagsins og hafa þá óskor­aðan atkvæðisrétt á fundum stjórna og nefnda sem þeir eru kjörnir til setu“
Breytingatillaga; Lagt er til að greinin breytist og verði svohljóðandi:
„Bakhjarlar félagsins eru kjör­geng­ir til trún­aðarstarfa á vegum félagsins, að stjórn  undanskilinni. Bakhjarlar  hafa óskor­aðan atkvæðisrétt á fundum  deilda og nefnda sem þeir eru kjörnir til setu í“
Greinargerð:
Hér er lagt til að bakhjarlar hafi ekki  kjörgengi til stjórnar. Tillagan er lögð fram til að gefa aðalfundi tækifæri á að taka afstöðu til kjörgengis bakhjarla til stjórnarkjörs. Enn þau sjónarmið hafa verið sett fram að það sé ekki við hæfi. Ekki er talin ástæða til að gera tillögu um að  útiloka bakhjarla frá öðrum trúnaðarstörfum en stjórnarsetu.
Verði tillagan samþykkt þá leiðir það til þess að gera þarf einnig breytingu á 3. mgr. 10 gr.

Breytingatillaga við 3. málsgrein  10. greinar.
3. mgr. 10. greinar er svohljóðandi;
„Félagsmenn og bakhjarlar Blindrafélagsins eru kjörgengir til stjórnar. Þó mega ekki fleiri en tveir úr hópi bakhjarla sitja í stjórn félagsins hverju sinni.“
Breytingatillaga; Lagt er til að greinin breytist og verð þá svohljóðandi:
„Félagsmenn Blindrafélagsins sem eru skuldlausir af félagsgjöldum hafa einir kjörgengi til stjórnar.“
Greinargerð: 
Þessi lagabreyting  tengist breytingatillögu við 5. gr. Verði hún samþykkt þá þarf þessa breytingu á 10. gr. Að öðrum kosti fellur þessi tillaga niður.  
 
Breytingatillaga á 2. mgr. 6. greinar.
2. mgr. 6. gr. er svohljóðandi:
„Boðað skal til almenns félagsfundar ef minnst 10 aðalfélagar óska þess og senda stjórn félagsins um það skriflega beiðni. Skulu þeir tilgreina ástæðu þess að óskað er eftir að félagsfundur verði boðaður. Stjórn skal boða til og halda fundinn innan hálfs mánaðar frá því að ósk berst.“ 
Breytingatillaga: Lagt er til að  2. mgr. 6. greinar verði svohljóðandi:
„Boðað skal til almenns félagsfundar ef minnst 5% félagsmanna óska þess og senda stjórn félagsins um það skriflega beiðni. Skulu þeir tilgreina ástæðu þess að óskað er eftir að félagsfundur verði boðaður. Stjórn skal boða til fundarins innan hálfs mánaðar frá því að ósk berst.“
Greinargerð: 
Þau mörk að 10 manns geti látið kalla saman félagsfund er arfleifð frá þeim tíma þegar að Blindrafélagið var mun fámennara en það er í dag.  Nú eru  680 manns skráðir í félagið, sem þýðir að 10 félagar  eru innan innan við 1,5% félagsmanna. Það verður að teljast
 óeðlilegt að svo lítill fjöldi félagsmanna geti látið kalla saman félagsfund.
 Tímaramminn sem markast af að boða til og halda fund innan tveggja vikna frá því að ósk um félagsfund berst til stjórnar er mjög naumur með hliðsjón af fyrirvara í 1 mgr. um að boða skuli félagsfund með minnst viku fyrirvara.   
 
 
Viðauka tillaga við  8. gr.
Inn í 2. mgr. 8 gr. verði bætt þessari setningu:
"Kjörnefnd skal jafnframt leggja mat á kjörgengi frambjóðenda og athuga hvort að félagsgjöld séu í skilum.“.
2. mgr. 8. gr.  verði þá svohljóðandi:
„Berist fleiri framboð til stjórnar en kjósa á um hverju sinni skal stjórn félagsins undirbúa kosningu og birta lista yfir þá sem í kjöri eru. Berist ekki nægilegur fjöldi framboða skal kjörnefndin, svo fljótt sem verða má, hlutast til um að afla þeirra fyrir aðalfund. Kjörnefnd skal jafnframt leggja mat á kjörgengi frambjóðenda og athuga hvort að félagsgjöld séu í skilum.“       
Greinargerð:
Hér er um að ræða að fela kjörnefnd formlega það hlutverk að kanna kjörgengi þeirra sem að bjóða sig fram. Samkvæmt núgildandi lögum félagsins gegnir enginn því hlutverki.

Breytingatillaga við 1. málsgrein  10. greinar.
1 mgr. 10. gr er svohljóðandi:
„Stjórn Blindrafélagsins skal kjörin á aðalfundi, hana skipa fimm aðalmenn og fjórir varamenn. Atkvæðamagn, raðval, ræður hverjir eru kjörnir í aðalstjórn eða varastjórn. Formaður skal kjörinn sérstaklega til tveggja ára. Stjórnin velur úr hópi sínum varaformann, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda.“
Breytingatillaga; Lagt er til að orðið „raðval“ verði fellt út úr greininni.
Greinargerð:
Raðvals  hugtakið rataði inn í lög félagsins fyrir tveimur árum án þess að kynnt væri hvað það þýðir. Mismunandi skoðanir eru uppi um hvað raðvals hugtakið felur í sér en samkvæmt Wikipedia felur það í sér að  ekki er spurt um flest atkvæði heldur flest stig sem reiknuð eru samkvæmt matsröðun kjósenda. Slíkt  kosningafyrirkomulag er ekki í samræmi við hvernig kosningar innan Blindrafélagsins hafa verið framkvæmdar. Af þeim sökum er lagt til að þetta hugtak verði fjarlægt úr lögum félagsins.

Viðbótartillaga.
Ný 15. grein (aðrar greinar færist aftar)  sem fjallar um hæfi og vanhæfi, verði svohljóðandi:
15. gr.
Stjórnarmanni ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls ef hann hefur hagsmuna að gæta sem kunna að fara í bága við hagsmuni Blindrafélagsins eða ef fyrir hendi eru aðstæður sem eru til þess fallnar að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.
 
Stjórnarmanni Blindrafélagsins er óheimilt að taka þátt í meðferð eða afgreiðslu máls ef málið varðar aðila sem er eða hefur verið maki stjórnarmanns, skyldur eða mægður stjórnarmanni í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur stjórnarmanni með sama hætti vegna ættleiðingar.
 
Ef stjórn Blindrafélagsins er falið að taka ákvörðun er tengist störfum yfirmanna Blindrafélagsins eða Blindravinnustofunnar ehf., er stjórnarmanni, sem er jafnframt almennur starfsmaður Blindrafélagsins eða Blindravinnustofunnar ehf., óheimilt að taka þátt í afgreiðslu eða meðferð málsins. Hér undir geta t.d. fallið ákvarðanir um launa- eða ráðningarkjör, lok ráðningarsambands eða afmörkun starfsskyldna. Ef stjórnarmaður hefur, sem almennur starfsmaður Blindrafélagsins, Blindravinnustofunnar ehf. eða Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónarskerta og daufblinda einstaklinga, tekið þátt í að undirbúa ákvörðun í tilteknu máli eða tekið ákvörðun í tilteknu máli, sem er síðan lagt fyrir stjórn Blindrafélagsins, er hann alltaf vanhæfur til að fjalla um málið. Þetta á þó ekki við um almenna stefnumótun eða aðra slíka áætlanagerð.
 
Ef stjórnarmaður er jafnframt leigutaki hjá Blindrafélaginu, hvort sem hann leigir viðkomandi húsnæði sem almennur íbúi eða undir atvinnurekstur, er honum óheimilt að taka þátt í afgreiðslu eða meðferð mála þar sem teknar eru ákvarðanir sem á einhvern hátt tengjast leiguhúsnæði í eigu Blindrafélagsins.
 
 Stjórnarmaður skal upplýsa stjórn Blindrafélagsins um vanhæfistilvik. Ef ágreiningur er uppi um hæfi stjórnarmanns greiðir stjórn félagsins atkvæði um hæfi viðkomandi  stjórnarmanns.. Viðkomandi stjórnarmaður má ekki taka þátt í slíkri atkvæðagreiðslu og ræður atkvæði formanns úrslitum ef atkvæði standa jöfn.
 
 Stjórnarmaður, sem er vanhæfur til meðferðar og afgreiðslu máls, má ekki taka þátt í meðferð þess eða hafa áhrif á það með öðrum hætti og skal ávallt yfirgefa stjórnarfund við meðferð þess og afgreiðslu og skal þá varamaður taka sæti hans.
Greinargerð:
Til að ákvarðanataka og stjórnsýsla uppfylli nútímakröfur um gagnsæi og  heiðarleika er mikilvægt að til staðar séu reglur um hæfi og vanhæfi. Hagsmunaárekstrar geta átt sér fjölbreyttan uppruna og ekki er óalgengt að einstaklingar finni sig gegna fleiri hlutverkum en einu og í sumum tilfellum getur slíkt leitt til hagsmunaárekstra. Um þetta eru fjöldamörg dæmi.

Innan félagsins hafa lengi verið umræður um mögulega hagsmunaárekstra sem kunna að hljótast af því að starfsmenn sitji í stjórn félagsins. Ein af ábendingum sannleiksnefndarinnar fól í sér að skoða þetta. Stjórn félagsins hefur skoðað þetta ítarlega og sótt sér ráðgjöf til lögmanns félagsins og átt samtal við  aðila úr sannleiksnefndinni um þá útfærslu sem hér er lögð til. Í þessari vinnu kom fljótlega í ljós að þó vissulega geti verið hætta á hagsmunaárekstrum vegna setu starfsmanna í stjórn þá geta hagsmunaárekstrar einnig orðið innan stjórnar félagsins af ýmsum öðrum ástæðum. Svo sem eins og vegna skyldleika eða fjölskyldutengsla, viðskiptahagsmuna þeirra sem að leigja hjá Blindrafélaginu, vegna starfsmanna Blindravinnustofunnar, starfsmanna Þjónustu og þekkingarmiðstöðvarinnar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og af öðrum ófyrirséðum ástæðum. Af þessum sökum varð það niðurstaða stjórnar félagsins að leggja til ítarleg ákvæði um hæfi og vanhæfi sem tækju á öllum mögulegum hagsmunaárekstrum frekar en að gera tillögu um að svipta tiltekna félagsmenn kjörgengi, sem ásamt kosningarétti er einn dýmætasti réttur einstaklinga í lýðræðissamfélagi.

Viðbótartillaga. 
Ný 16. grein (aðrar greinar færist aftur)  sem fjallar um vantraust, verði svohljóðandi:
16. gr.
 Gerist stjórnarmaður brotlegur við refsilög og/eða siðareglur Blindrafélagsins, vinnur gegn hagsmunum félagsins eða félagsmanna þess eða sýnir af sér aðra verulega ámælisverða háttsemi og allar sáttatilraunir reynast árangurslausar, er stjórn Blindrafélagsins heimilt að samþykkja tillögu um vantraust á viðkomandi stjórnarmann. Meirihluti aðalstjórnarmanna, að undanskildum þeim sem vantrauststillaga lýtur að, þurfa að vera samþykkir slíkri ákvörðun.
 Ef stjórn Blindrafélagsins samþykkir tillögu um vantraust samkvæmt 1. mgr., er stjórninni skylt að boða til félagsfundar innan tveggja vikna og skal boða til fundarins í samræmi við 6. gr. þessara laga. Á meðan beðið er ákvörðunar félagsfundar, er þeim stjórnarmanni sem lýst hefur verið vantrausti á óheimilt að taka þátt í stjórnarstörfum á vegum félagsins.
 
Ef brot stjórnarmanns skv. 1. mgr. eru sérlega ámælisverð eða ef viðkomandi stjórnarmaður hefur eða mun valda Blindrafélaginu skaða með framgöngu sinni, er stjórn félagsins heimilt, samhliða því að leggja fram tillögu um vantraust, að leggja fram tillögu um að viðkomandi stjórnarmanni verði vikið úr Blindrafélaginu.
 
Félagsfundur, sem er boðaður skv. 2. mgr. þessarar greinar, skal hlýða á sjónarmið stjórnarinnar og þess stjórnarmanns sem vantrauststillaga lýtur að. Í kjölfar þess að báðir aðilar hafa gert grein fyrir sjónarmiðum sínum, tekur félagsfundur annaðhvort ákvörðun um að staðfesta tillögu stjórnar, sem felur þá í sér tafarlausa brottvikningu viðkomandi stjórnarmanns úr embætti, eða hafna tillögu stjórnar, sem felur þá í sér að viðkomandi stjórnarmaður heldur stöðu sinni. Ef stjórn félagsins hefur nýtt sér heimild skv. 3. mgr. til að bera fram tillögu um brottvikningu viðkomandi stjórnarmanns úr félaginu, skal félagsfundur einnig taka afstöðu til þeirra tillögu. Skal einfaldur meirihluti greiddra atkvæða ráða niðurstöðu félagsfundar um samþykkt tillögu stjórnar um vantraust en til samþykkis brottvikningar þarf 2/3 greiddra atkvæða á félagsfundi.
 
 Ef félagsfundur staðfestir tillögu stjórnar, tekur varamaður sæti þess stjórnarmanns sem félagsfundur hefur vikið úr embætti og situr út kjörtíma þess stjórnarmanns.
 
 Ef almennur félagsmaður brýtur gegn refsilögum og/eða siðareglum Blindrafélagsins, sýnir af sér sérlega ámælisverða háttsemi eða hefur eða mun valda Blindrafélaginu skaða með framgöngu sinni, er stjórn Blindrafélagsins heimilt að leggja fram tillögu um að viðkomandi félagsmanni skuli vikið úr Blindrafélaginu. Um málsmeðferð slíkra tillögu fer eftir 3. og 4. mgr. þessa ákvæðis eftir því sem við á. Til samþykkis brottvikningar almenns félagsmanns þarf 2/3 greiddra atkvæða á félagsfundi.
Greinargerð:
Í samræmi við ábendingu sannleiksnefndarinnar þá er hér gerð tillaga um  skilgreina  hvaða ferli á að vinna eftir ef stjórnarmaður eða félagsmaður brýtur refsilög og/eða siðareglur Blindrafélagsins, vinnur gegn hagsmunum félagsins eða félagsmanna þess eða sýnir af sér aðra verulega ámælisverða háttsemi og allar sáttatilraunir reynast árangurslausar. Mikilvægt er að hafa í huga að þetta ferli getur ekki farið í gang nema búið sé að leita sátta og útséð er með að sættir muni nást. Hér eru hagsmunir félagsins í fyrirrúmi.