Jólakort Blindrafélagsins 2015

Sala á jólakorti Blindrafélagsins 2015 er hafin

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir sala jólakorta veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa jólakort félagsins, tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi. 

Jólakortið 2015

Jólakortin og merkispjöldin eru með myndinni „Barr“ eftir listakonuna Laufeyju Jónsdóttur. Kortið er með upphleyptri mynd af jólatré og undir trénu stendur Gleðileg jól á punktaletri.


• Jólakortin eru seld átta saman í pakka ásamt umslögum á kr. 1.600. 
• Merkispjöldin eru átta saman í pakka og eru seld á kr. 600.

Merkispjaldið 2015

Hægt er að kaupa kortin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík, sími 525 0000, versla í vefverslun okkar á www.blind.is eða senda tölvupóst á netfangið blind@blind.is. 


Blindrafélagið hvetur alla velunnara sína að styðja félagið með kaupum á þessum fallegu jólakortum og merkispjöldum.