Hausthappdrætti Blindrafélagsins 2016

Stuðningur til sjálfstæðis!

Hausthappdrætti Blindrafélagsins 2016

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Þar gegnir happdrætti félagsins, með sínum glæsilegu vinningum, veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa happdrættismiða tekur þú virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðlar þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.

Velunnurum félagsins hafa verið sendir miðar í pósti og þeir munu jafnframt birtast í heimabanka viðkomandi sem valkrafa. Þeir sem kjósa að styrkja Blindrafélagið með miðakaupum, miðaverð 2750 kr., eiga möguleika á að vinna einhvern eftirtalinna vinninga:

o   Opel Mokka Enjoy 1.6L dísel, sjálfskiptur að verðmæti kr. 4.590.000

o   Opel Astra Innovation 1.6L dísel – túrbó, sjálfskiptur að verðmæti kr. 4.090.000

o   Opel Corsa Enjoy 1.4L bensín, sjálfskiptur, að verðmæti kr. 2.590.000

o   40 ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 500.000

o   50 ferða vinningar með leiguflugi frá Heimsferðum, hver að verðmæti kr. 300.000

o   40 Samsung Galaxy Note 7 snjallsími, hver að verðmæti kr. 139.000

o   60 Samsung Galaxy S7 snjallsími, hver að verðmæti kr. 99.900

o   70 Samsung Galaxy J5 snjallsími, hver að verðmæti kr. 34.900

o   70 Samsung Galaxy View, WiFi spjaldtölva, hver að verðmæti kr. 99.900

o   70 Samsung Tab S2, WiFi spjaldtölva, hver að verðmæti kr. 69.900

           

Alls 403 vinningar að heildarverðmæti rúmar 72 milljónir króna.
Útgefnir miðar eru 157.000.
Dregið verður í happdrættinu 12. desember 2016.


Í haust ætlum við í Blindrafélaginu að brydda upp á nýjum leik í samstarfi við veitingastaðina Apotek, Sushi samba, Sæta svínið og Tapas barinn.
Við ætlum að vera með leik innan happdrættisins okkar.
Allir þeir sem hafa greitt fyrir miða í  hausthappdrætti Blindrafélagsins fara sjálfkrafa í happapott sem við drögum úr hvern fimmtudag frá 20. október til 12. Desember, en þá er dregið úr sjálfu happdrættinu. 
Vinningshafar eru svo tilkynntir hvern föstudag fram að 12. desember.
Vinningarnarnir í leiknum eru þrjú gjafabréf að andvirði 10.000 króna á matsölustaðina, Apotek, Sushi samba, Sæta svínið og Tapas barinn.

Mynd af happdrættismiðanum

Stuðningur hins opinbera við starf Blindrafélagsins hefur dregist verulega saman á síðustu árum sem leiðir til þess að félagið þarf enn frekar að leita til almennings í landinu eftir stuðningi.
Verkefni Blindrafélagsins eru fjölbreytt og meðal verkefna sem félagið vinnur ötullega að er að úthluta fleirum blindum einstaklingum leiðsöguhunda. Annað mikilvægt verkefni er Vefvarp Blindrafélagsins, nettengd lestölva, sem opnar aðgang að upplýsingum og efni fjölmiðla sem í dag eru að miklu leiti óaðgengilegir eldra blindu og sjónskertu fólki sem ekki er vel tölvulæst. Meðal þess sem hægt er að hlusta á í gegnum vefvarpið er rauntíma lestur á texta í sjónvarpi Ríkissjónvarpsins, lestur á Morgunblaðinu að morgni útgáfudags, Fréttatímanum og öðru efni á vefnum, bækur frá Hljóðbókasafni Íslands, tilkynningar og efni frá Blindrafélaginu, fræðslu frá Þjónustu og Þekkingarmiðstöðinni fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, fjölda innlendra og erlendra útvarpsstöðva og margt fleira.
 
Vefvarpið notar talgervilinn Karl og Dóru við upplesturinn. Ekki þarf neina tölvukunnáttu til að geta nýtt tækið. Þessi tækni hefur valdið straumhvörfum í upplýsingamiðlun til blindra og sjónskertra eldri borgara.
 
Í meira en 77 ár hefur Blindrafélagið, með öflugum stuðningi íslensks almennings, barist af alefli fyrir réttindum blindra og sjónskertra einstaklinga og í dag er félagið í fararbroddi í jafnréttisbaráttu fatlaðra á Íslandi.