Við ætlum að vera með leik innan happdrættisins okkar.
Allir þeir sem hafa greitt fyrir miða í hausthappdrætti Blindrafélagsins og hafa lækað Facebooksíðu Blindrafélagsins fara sjálfkrafa í happapott sem við drögum úr hvern fimmtudag frá 20. október til 12. Desember, en þá er dregið úr sjálfu happdrættinu.
Vinningshafar eru svo tilkynntir hvern föstudag fram að 12. desember.
Vinningarnir í hverjum drætti eru þrjú gjafabréf að andvirði 10.000 króna á matsölustaðina, Apotek, Sushi samba, Sæta svínið og Tapas barinn.
Svo því fyrr sem er greitt því oftar er nafnið þitt í pottinum!