Blindrafélagið auglýsir lausa til umsóknar leiguíbúð í húsi félagsins að Hamrahlíð 17.

Um er að ræða 61 m2 2ja herbergja íbúð á fjórðu hæð.

Mánaðarleg húsaleiga er kr. 90.000 kr. Húsaleigan breytist í samræmi við breytingar á vísitölunni.  Auk húsaleigu er fast mánaðarlegt húsgjald, nú kr. 6.200 sem dekkar m.a. allan hitakostnað og rafmagn í sameign.

Íbúðin verður leigð út í langtímaleigu frá og með 1. desember 2015.

Eingöngu félagsmenn Blindrafélagsins koma til greina við úthlutun. Tekið verður mið af félagslegri og fjárhagslegri stöðu umsækjenda og úthlutunarreglna fyrir félagslegt húsnæði.

Senda skal skriflegar umsóknir á skrifstofu Blindrafélagsins merktar undirrituðum eða á netfangið khe@blind.is 

Afrit af skattframtali skal fylgja umsóknum.

Umsóknarfrestur er til 22. nóvember 2015.