„Að varðveita lífsgleðina“, fræðsluerindi um andlega heilsu og vellíðan fært til 9. mars

Næsti fyrirlestur verður haldinn fimmtudaginn 9. mars næst komandi að Hamrahlíð 17 og hefst hann klukkan 17:00.   Flutt verður fræðsluerindi undir yfirskriftinni Að varðveita lífsgleðina, þar sem fjallað verður um leiða, depurð og þunglyndi, hver eru hættumerkin og leiðirnar til bregðast við í tíma. Fyrirlesari verður Katrín Sverrisdóttir sálfræðingur.

Þetta fræðsluerindi var áætlað að halda 2. mars en það hefur verið fært fram til 9. mars.

Sigþór U. Hallfreðsson
Formaður