Sumarhátíð foreldradeildar blindrafélagsins

Það verður hoppukastali á staðnum, töframaður, andlitsmálari og fleiri listamenn sjá um að skemmta okkur með göldrum, tónlist og ýmiskonar glensi.  Margskonar leiktæki verða til staðar til þess að prófa leikni og þor ásamt spennandi tombólu þar sem miðarnir kosta ekki krónu. Við bjóðum upp á pulsur, svala, poppkorn og ís í góða veðrinu og vonumst til þess að sjá sem flesta gesti. 

Krakkar, bjóðið pabba og mömmu, afa og ömmu, systkinum og góðum vinum með á fjölskylduhátíðina í Hamrahlíðinni eftir hádegið sunnudaginn 30.júní næstkomandi klukkan tvö.

Sjáumst öll í sumarskapi


Foreldradeild Blindrafélagsins og sjóðurinn Blind börn á Íslandi