Hlaupið til styrktar sjóðnum blind börn á Íslandi

Meðan fæturnir bera mig afhendir öll áheit og allt sem safnast með þáttökugjöldum óskert til sjóðsins en til þess að það megi verða reiðir félagið sig á velviljaða aðila sem standa straum af kostnaði. Síminn er aðalstyrktaraðili hlaupsins.
 

Staður og tímasetning
Meðan fæturnir bera mig vill endilega fá sem flesta til að taka þátt í 5 kílómetra hlaupi í Öskjuhlíðinni laugardaginn 1.júní klukkan 12.00  Mæting er í Nauthólsvík.

Aldursflokkar      Mynd af heimasiðu Meðan fæturnir bera mig

  • Yngri en 12 ára
  • 12-15 ára
  • 18-18 ára
  • 19-39 ára
  •  40+ ára

Skráning og áheit

Þátttökugjald er kr.1.000 en öllum er frjálst að greiða eins og þeim hentar til að styrkja við málefnið. Skráning fer fram á heimasíðu Meðan fæturnir bera mig.

 Verðlaun eru veitt fyrir fyrsta sæti í öllum flokkum.  Einnig verða veitt fjölbreytt og glæselg útdráttarverðlaun.

Hægt er að styrkja átakið með því að hringja í eitt af eftirfarandi símanúmerum og styrkurinn færist þá á það símanúmer sem hringt er úr.

  • 901-5001 (1000 krónur)
  • 901-5003 (3000 krónur)
  • 901-5005 (5000 krónur)

Einnig er hægt að styrkja málefnið með því að millifæra á reikning félagsins, 546-14-402424, kt. 650512-0140.