Meðan fæturnir bera mig afhendir öll áheit og allt sem safnast með þáttökugjöldum óskert til sjóðsins en til þess að það megi verða reiðir félagið sig á velviljaða aðila sem standa straum af kostnaði. Síminn er aðalstyrktaraðili hlaupsins.
Staður og tímasetning
Meðan fæturnir bera mig vill endilega fá sem flesta til að taka þátt í 5 kílómetra hlaupi í Öskjuhlíðinni laugardaginn 1.júní klukkan 12.00 Mæting er í Nauthólsvík.
Aldursflokkar
- Yngri en 12 ára
- 12-15 ára
- 18-18 ára
- 19-39 ára
- 40+ ára
Skráning og áheit
Þátttökugjald er kr.1.000 en öllum er frjálst að greiða eins og þeim hentar til að styrkja við málefnið. Skráning fer fram á heimasíðu Meðan fæturnir bera mig.
Verðlaun eru veitt fyrir fyrsta sæti í öllum flokkum. Einnig verða veitt fjölbreytt og glæselg útdráttarverðlaun.
Hægt er að styrkja átakið með því að hringja í eitt af eftirfarandi símanúmerum og styrkurinn færist þá á það símanúmer sem hringt er úr.
- 901-5001 (1000 krónur)
- 901-5003 (3000 krónur)
- 901-5005 (5000 krónur)
Einnig er hægt að styrkja málefnið með því að millifæra á reikning félagsins, 546-14-402424, kt. 650512-0140.