Leiðsöguhundadagatal Blindrafélagsins 2012

SebastianÁ milli jóla og nýárs munu velunnarar Blindrafélagsins fá sent þriðja leiðsöguhundadagatal Blindrafélagsins. Dagatalið er með myndum og fróðleik af leiðsöguhundinum Sebastian sem er fyrsti leiðsöguhundurinn fyrir blinda sem þjálfaður er og afhentur notenda hér á landi í samstarfi Blindrafélagsins og Þjónustu og þekkingarmiðstöðvarinnar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Útgáfa dagatalsins er hugsuð sem fjáröflun til að standa straum af kaupum og þjálfun leiðsöguhunda fyrir blinda. Valkrafa upp á 1.800 kr. fylgir hverju dagatali í þeirri von að sem flestir velunnarar félagsins sjái sér þess fært að styðja þetta mikilvæga málefni.

Á Íslandi eru starfandi 6 leiðsöguhundar fyrir blinda, en þörf er á mun fleiri. Þótt hver leiðsöguhundur kosti nokkrar milljónir og kunni að virðast dýr, þá ber að hafa í huga að starfsævi þeirra er á bilinu 8 – 10 ár og allan þann tíma bætir hundurinn lífsgæði notenda síns umtalsvert. Þegar kostnaður er reiknaður niður á dag er hann ekki hærri en sem nemur verði á einni pizzu.

Þeir sem ekki hafa fengið sent dagatal en myndu vilja eignast það, geta pantað það hjá margret@blind.is og hildur@blind.is  Verð er 1.800 krónur.

Leiðsöguhundur er stuðningur til sjálfstæðis.  

Hér má skoða dagatalið í pdf skrá.

Upplýsingabæklingur um leiðsöguhunda.gefinn út af Blindrafélaginu í pdf skrá.
Mynd af Sebastina, forsiða leiðsöguhundadagatals 2012