Tilkynning um framboð til stjórnar Blindrafélagsins

Laugardaginn 26 apríl kl. 13:00 rann út framboðsfrestur til stjórnar Blindrafélagsins. Á aðalfundi félagsins 17. maí 2014 á að kjósa til næstu tveggja ára:

  • formann til tveggja ára,
  • tvo stjórnarmenn í aðalstjórn,
  • tvo varamenn í stjórn.

Kjörnefnd félagsins, þau Bessi Gíslason, Brynja Arthúrsdóttir og Sigtryggur R Eyþórsson hittist að loknum framboðsfresti og birtir hér fyrir neðan lista yfir þá sem verða í framboði.

Eftirtaldir gefa kost á sér í embætti formanns til næstu tveggja ára:

  • Bergvin Oddsson
  • Rósa María Hjörvar

Eftirtaldir gefa kost á sér í aðalstjórn Blindrafélagsins til næstu tveggja ára:

  • Bergvin Oddsson
  • Eyþór Þrastarson
  • Halldór Sævar Guðbergsson
  • Lilja Sveinsdóttir
  • Rósa Ragnarsdóttir

Eftirtaldir gefa kost á sér í varastjórn til næstu tveggja ára:

  • Eyþór Þrastarson
  • Guðmundur Rafn Bjarnason
  • Lilja Sveinsdóttir
  • Rósa Ragnarsdóttir

Reykjavík, 26. apríl 2014.

f.h. kjörnefndar Blindrafélagsins,

Ólafur Haraldsson
framkvæmdastjóri