Kl. 10.00 í morgun rann út framboðsfrestur til stjórnar Blindrafélagsins. Á aðalfundi félagsins 19. maí 2012 á að kjósa til næstu tveggja ára:
· formann félagsins
· tvo stjórnarmenn í aðalsjórn
· tvo varamenn í stjórn
Kjörnefnd félagsins, þau Bessi Gíslason, Brynja Arthúrsdóttir og Ragnar R Magnússon komu saman kl. 10:00 og fóru yfir þau framboð sem borist höfðu.
Eftirtaldir einstaklingar gefa kost á sér í embætti formanns Blindrafélagsins til næstu tveggja ára:
Friðgeir Þ Jóhannesson
Kristinn Halldór Einarsson
Eftirtaldir einstaklingar gefa kost á sér í aðalstjórn Blindrafélagsins til næstu tveggja ára:
Eyþór Þrastarson
Friðgeir Þ Jóhannesson
Halldór Sævar Guðbergsson
Margrét Guðný Hannesdóttir
Rósa María Hjörvar
Eftirtaldir einstaklingar gefa kost á sér í varastjórn til næstu tveggja ára:
Eyþór Þrastarson
Friðgeir Þ Jóhannesson
Margrét Guðný Hannesdóttir
Rósa Ragnarsdóttir
Sigurjón Einarsson
Reykjavík, 28. apríl 2012.
f.h. Kjörnefndar Blindrafélagsins,
Ólafur Haraldsson
framkvæmdastjóri Blindrafélagsins.