Aðalfundur Blindrafélagsins 2012

Aðalfundur Blindrafélagsins verður haldinn laugardaginn 19. maí 2012 í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17 og hefst hann kl. 10:00 árdegis. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.
Nánar auglýst síðar.
Samkvæmt lögum Blindrafélagsins skal nú kjósa til tveggja ára; formann félagsins, tvo stjórnarmenn og tvo varamenn í stjórn.
Minnt er á að framboðum til formanns og stjórnar skal skila til skrifstofu félagsins eigi síðar en þremur vikum fyrir boðaðan aðalfund og rennur því framboðsfrestur út kl. 10:00 árdegis, laugardaginn 28. apríl n.k.
Vakin er athygli á því að sá/sú sem býður sig fram til formanns eða stjórnar er ekki sjálfkrafa í kjöri í annað embætti en það sem hann/hún býður sig fram til. Vilji menn bjóða sig fram í fleiri en eitt embætti, þurfa þeir að taka það sérstaklega fram.
Félagsmenn og bakhjarlar Blindrafélagsins eru kjörgengir til stjórnar. Þó mega ekki fleiri en tveir úr hópi bakhjarla sitja í stjórn félagsins hverju sinni.
Framboðum má skila á venjulegu letri, punktaletri eða með rafrænum hætti.  Senda má inn framboð með símbréfi í síma 525 0001 eða í tölvupósti til Ólafs Haraldssonar, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins á netfangið: olafur@blind.is
Tillögum til breytinga á lögum félagsins þarf að skila til skrifstofu fyrir sama tíma, (þ.e. 28. apríl 2012, kl. 10:00).

Stjórn Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi