Stuðningur til sjálfstæðis, styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins auglýsir eftir styrkumsóknum. Veittir eru styrkir í 4 styrkjaflokkum, A, B, C og D:
- A Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra.
- B Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.
- C Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum.
- D Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar.
Umsóknarfrestur rennur út 30. september 2019.
Umsóknum skal skila rafrænt á sérstöku eyðublaði sem má nálgast á tengli hér fyrir neðan.
Úthlutunarreglur Umsóknareyðublað