Hægt er að skrá sig á heimasíðu félagsins, með því að senda póst á afgreidsla@blind.is eða með þvi að hringja í síma 525 0000 á skrifstofutíma.
Á sama hátt er óskað eftir kjörgögnum.
Opnað verður fyrir rafræna atkvæðagreiðslu á skrifstofu félagsins þriðjudaginn 2. maí og er hægt að kjósa á opnunartíma skrifstofunnar fram til kl. 15:00 föstudaginn 12. maí.
Félagsmenn geta greitt atkvæði með eftirfarandi hætti:
a) Í rafrænni kosningu í aðgengilegu og öruggu kosningakerfi.
b) Í rafrænni kosningu með aðstoð frá skrifstofu félagsins.
c) Í rafrænni kosningu á aðalfundi.