Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna á Íslandi allt að 18 ára aldri. Sjóðurinn veitir einungis styrki vegna atburða og eða hluta sem eru annars ekki styrktir af almannatryggingum, Svæðaskrifstofu málefna fatlaðra, félagsþjónustu sveitafélaga eða af öðrum stofnunum eða sjóðum sem koma að málum blindra og sjónskertra barna
Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á Fyrsta vetrardag næstkomandi sem er 24.október 2009. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 17.október 2009
Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða á netfangið klara@blind.is Umsóknir skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um.
Grein