Ritgerðarsamkeppni á vegum EBU fyrir punktaletursnotendur

Efni samkeppninnar eru:

1) "Hlutverk punktaleturs í þátttöku sjónskertra í stjórnmálum, efnahagslífi, menningarlífi, samfélagi og fjölskyldulif." Það mætti t. d. nálgast efnið með því að skrifa um punktaletur og tækni, þörf fyrir punktaletur á öllum alldri eða punktaletur og kosningar.

2) "Lifað með punktaletri". Hvatt er til að kennarar og allir aðrir sem nota punktaletur eða vilja nota það skrifi um hlutverk punktaleturs.

Form textans er frjálst og getur ritgerðin einnig verið skáldskapur.

Punktaletursnotendur á öllum aldri geta tekið þátt í samkeppninni. Hver og einn má senda inn eina ritgerð annað hvort á móðurmáli eða á ensku og í tölvutæku formi. Textarnir eiga að vera að hámarki 1000 orð á móðurmáli.

Keppendur eiga að skila textum sínum fyrir 20 maí 2013 á netfangið kaisa@blind.is. EBU dómsnefndin velur vinningshafana 20. september 2013. Í samkeppninni eru veitt eftirfarandi verðlaun:

Fyrstu verðlaun 2000 US dollarar

Önnur verðlaun:
- Yngri flokkur (undir 25 ára): 1000 US dollarar.
- Eldri flokkur (yfir 25 ára):  1000 US dollarar.

þriðju og fjórðu verðlaun:
- Yngri flokkur (2 verðlaun): 500 US dollarar hvor um sig.
- Eldri flokkur: (2 verðlaun): 500 US dollarar hvor um sig.

Nánari upplýsingar um ritgerðarsamkeppnina veitir Marjakaisa Matthíasson, netfang: kaisa@blind.is