Ný stjórn hjá foreldradeild Blindrafélagsins

Farið var yfir starf seinasta árs og stöðu deildarinnar og lögð drög að starfi ársins sem er framundan. Mikil stemning var fyrir því að skipuleggja spennandi viðburði á árinu. Marjakaisa Matthíasson kynnti hugmynd sína um sumarbúðir fyrir krakkana og einnig var skoðaður möguleiki á að fara í dagsferð með fjölskyldunum í sumar.
 
Svanhildur frá spilavinum mætti á fundinn og sýndi stórskemmtileg og fjölbreytt spil sem henta vel sjónskertum börnum.