Laust starf trúnaðarmanns Blindrafélagsins í afleysingu til eins árs.
10. mars, 2017
Blindrafélagið auglýsir eftir einstaklingi til að gegna starf trúnaðarmanns í afleysingu til eins árs, frá 1 júní 2017 – 31. maí 2018. Um er að ræða 25% starfshlutfall og mun viðkomandi verða einn af þremur trúnaðarmönnum félagsins. Meginstarf trúnaðarmanna er að vera reglulega í símasambandi við þá félagsmenn sem þeir hafa fengið úthlutað sem skjólstæðingum. Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 31. mars. Umsóknir skulu berast til Kristins Halldórs Einarssonar, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins, netfang, khe@blind.is
|
|
|
-
3. mars, 2017
-
2. mars, 2017
-
2. mars, 2017