Eftirtaldar breytingar á lögum Blindrafélagsins voru samþykktar á aðalfundinum á laugardaginn:
a) 3. grein laganna – önnur málsgrein í leiðarljósi: Fella skal niður orðin „við hæfi“ í lok setningarinnar. Setningin verði þannig: „að stuðla að því að blindir og sjónskertir geti aflað sér menntunar og hafi atvinnu.“
b) 2. Kafli – Heiti kaflans verði „Félagsaðild“.
c) 6. grein – Fyrsta málsgrein falli niður en í stað komi eftirfarandi málsgrein: „Almennan félagsfund skal stjórn boða með minnst viku fyrirvara með dagskrá á miðlum félagsins eða á annan opinberan hátt“.
d) 7. grein – Fyrsta málsgrein falli niður en í stað komi eftirfarandi málsgrein: „Atkvæðisrétt á fundum félagsins hafi allir félagsmenn skv. 4. gr. laganna.“
e) 9. grein, c. liður – Liðurinn falli niður í núverandi mynd en í stað komi eftirfarandi: „Ákveðið árgjald félagsmanna fyrir næsta almanaksár, svo og tillag ævifélaga.“
f) 9. grein, h. liður – Liðurinn falli niður.
g) - i. liður verði h. liður
h) - j. liður verði i. liður
i) - Nýr j. liður verður eftirfarandi – „Aðalfundur ákveði laun stjórnarmanna.“
j) 10. grein, 3. málsgrein – Fyrsta orð greinarinnar, orðið „Aðalfélagar“ falli í burt og í stað komi orðið „Félagsmenn“
k) 17. Grein, síðari setning. Orðið „snældum“ falli út en í staðinn komi orðið „hljóðformi“. Setningin verði því þannig: „Skulu reikningar síðan liggja frammi á skrifstofu félagsins, með venjulegu letri, blindraletri og á hljóðformi eigi síðar en viku fyrir boðaðan aðalfund.“