Frá strönd til strandar – Fjáröflun til styrktar baráttunni gegn blindu

Dagana 21. til 30. ágúst munu blindir og sjónskertir einstaklingar freista þess að ganga um 300 km leið þvert yfir England á 10 dögum. Verkefnið er skipulagt af bresku RP Fighting blindness samtökunum.
Tilgangurinn er að safna fé til áframhaldandi rannsókna og klínískra tilrauna í því skini að finna meðferðir við ólæknandi arfgengum hrörnunarsjúkdómum í sjónhimnunni, sem eru algengustu orsakir blindu og alvarlegra sjónskerðinga hjá börnum og ungu fólki. Um er að ræða sjúkdóma og einkenni eins og RP, LCA, AMD, Usher, Stargard og fleiri. Á Íslandi eru þetta nokkur hundruð einstaklingar. Mikill árangur hefur náðst í þessum rannsóknum á undanförnum árum og nú er svo komið að þörf er á miklum fjármunum til að hægt sé að fara í kostnaðarsamar klínískar tilraunir, sem eru nauðsynlegar til að þróa meðferðir og lækningar. Fjöldi mjög sérhæfðra vísindamanna vinnur nú, þvert yfir landamæri, að mörgum fjölþættum verkefnum í þessu skini.


 c2cFormaður Blindrafélagsins, Kristinn Halldór Einarsson, tekur þátt i göngunni og safnar um leið áheitum í fjáröflunina. Lágmarksþátttökugjald fyrir þátttakanda og fylgdarmann er 3000 bresk pund, eða um 600.000 IKR.

Söfnunarreikningur vegna verkefnisins er í vörslu Blindrafélagsins. Reiknisnúmer: 515-26-440512 - kt. 470169-2149

Frekari upplýsingar veitir Kristinn í síma 661 7809 og eins er hægt að skoða vefsíðu verkefnisins hér.