Félagsfundur hjá Blindrafélaginu

Boðað er til félagsfundar hjá Blindrafélaginu fimmtudaginn 3 nóvember næstkomandi kl 17:00 í fundarsalnum að Hamrahlíð 17. Megin fundarefnið verður kynning á skoðanakönnununum sem Capacent hefur gert fyrir Blindrafélagið.

Um er að ræða fjórar kannanir:

·       Viðhorf almennings til sjónmissis og alvarlegrar sjónskerðingar

·       Viðhorf almennings til Blindrafélagsins og annarra sambærilegra samtaka

·       Könnun meðal stuðningsmanna Blindrafélagsins.

·       Könnun meðal félagsmanna Blindrafélagsins.