Blindrafélagið dreifir Daisyspilurum til félagsmanna

Blindrafélagið hefur með aðstoð stuðningsaðila selt Daisyspilara til félagsmanna og hefur salan gengið framar öllum vonum. Óhætt er að segja að félagsmenn hafi tekið þeim vel.

Aðeins 5 spilarar eru óseldir og ekki hefur ennþá verið tekin ákvörðun um hvort fleiri verði boðnir á næstunni á þessu lága verði, þ.e. 7.900 kr. stk.

Til að svo megi verða þurfa styrkir að fást til að halda áfram að selja spilarana á þessu verði en þeir myndu kosta um 40 þúsund krónur ef fullt verð væri greitt fyrir þá.

Á þessu ári er búið að selja 150 félagsmönnum Daisyspilara.

 

Daisyspilarar eru svipaðir og CD spilarar. Þeir taka geisladiska, bæði venjulega og diska með pökkuðu efni (mp3). Skrár á daisyformi  eru pakkaðar og eru settar þannig upp að notandinn getur farið á einstakar blaðsíður, jafnvel setningar. Þá man spilarinn hvar var hætt seinast þegar kveikt er á spilaranum. Þá er hægt að setja bókamerki sem tækið man og getur farið á þegar þess er óskað. Pökkukn skránna er það mikið á bók sem var á 12 geisladiskum kemst á einn ef hún er pökkuð.