Breytt heimasíða

Alltaf er nauðsynlegt að endurskoða heimasíður reglulega og það gerum við sem önnumst þessa síðu. Mest áberandi er sú breyting að í stað frétta á forsíðu eru nú komnir tveir dálkar. Annar er fyrir fréttir og hinn fyrir tilkynningar úr félagslífinu og auglýsingar ýmis konar. Þá hafa undirliðir sem voru neðst á síðunni og hurfu þar til skrumað hafði verið niður eftir síðuni verði settir til hliðar undir mynd. Bætt hefur verið við tákni á forsíðuna fyrir "mínar lita og leturstillingar." Þar geta sjónskertir, lesblindir og aðrir sem þurfa á sérstillingum að halda valið það sem þeim hentar. Síðan hefur verið yfirfarin af sérstöku vottunarfyrirtæki um aðgengi og var síðan bætt að þeirra tillögu. Sífellt þarf að hafa vakandi auga yfir svona síðu og eru tillögur vel þegnar.