Úthlutun á leiðsöguhundi

Umsókn um leiðsöguhund skal berast til Miðstöðvarinnar fyrir 25. maí 2015.

Umsóknir skulu merktar Miðstöðinni, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða sendar með tölvupósti á thorbjorg@midstod.is

Einnig er vakin athygli á því að 18. maí 2015 kl. 16:00 verður haldin kynning á leiðsöguhundum og úthlutunarferlinu. Kynningin mun fara fram hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga í Hamrahlíð 17 í fundarsal á 2. hæð.

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, hefur verið styrktaraðili leiðsöguhundaverkefnisins frá upphafi.