Laugardaginn 26 apríl kl. 13:00 rann út framboðsfrestur til stjórnar Blindrafélagsins. Á aðalfundi félagsins 17. maí 2014 á að kjósa til næstu tveggja ára:
- formann til tveggja ára,
- tvo stjórnarmenn í aðalstjórn,
- tvo varamenn í stjórn.
Kjörnefnd félagsins, þau Bessi Gíslason, Brynja Arthúrsdóttir og Sigtryggur R Eyþórsson hittist að loknum framboðsfresti og birtir hér fyrir neðan lista yfir þá sem verða í framboði.
Eftirtaldir gefa kost á sér í embætti formanns til næstu tveggja ára:
- Bergvin Oddsson
- Rósa María Hjörvar
Eftirtaldir gefa kost á sér í aðalstjórn Blindrafélagsins til næstu tveggja ára:
- Bergvin Oddsson
- Eyþór Þrastarson
- Halldór Sævar Guðbergsson
- Lilja Sveinsdóttir
- Rósa Ragnarsdóttir
Eftirtaldir gefa kost á sér í varastjórn til næstu tveggja ára:
- Eyþór Þrastarson
- Guðmundur Rafn Bjarnason
- Lilja Sveinsdóttir
- Rósa Ragnarsdóttir
Reykjavík, 26. apríl 2014.
f.h. kjörnefndar Blindrafélagsins,
Ólafur Haraldsson
framkvæmdastjóri