Tilgangur sjóðsins er að styrkja kennara og annað fagfólk til sérnáms hérlendis og erlendis sem tengist kennslu og þjónustu við blinda og sjónskerta einstaklinga. Styrkir mega nema skólagjöldum, kostnaði við námsgögn og ferðakostnaði vegna náms erlendis.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2008 og ber að skila umsóknum á eyðublöðum sem fást hér ásamt prófskírteinum úr háskólanámi, upplýsingum um starfsferil og upplýsingum um áformað nám. Umsóknum skal skilað til Kennaraháskóla Íslands, Stakkahlíð, 105 Reykjavík og skulu þær merktar Menntunarsjóði til blindrakennslu b.t. Gretars L. Marinóssonar.
Um frekari meðferð umsókna fer samkvæmt meðfylgandi úthlutunarreglum