Nýr alþjóðafulltrúi til starfa hjá Blindrafélaginu

Kristinn hefur, undanfarin tvö ár, setið í stjórn Blindrafélagsins og gengt þar stöðu gjaldkera.
Hann hefur margháttaða reynslu af erlendu samstarfi. Um er að ræða reynslu frá námsárunum þegar Kristinn var í forystu íslenskra og evrópskra námsmannasamtaka.
Undanfarin ár hefur Kristinn síðan sinnt starfi sem hefur haft í för með sér mikil erlend samskipti í formi viðskiptasambanda.
Blindrafélagið þakkar Ingu Dóru vel unnin störf og býður Kristinn velkominn til starfa.