Stjórnin ákvað að úthluta alls 13 styrkjum að upphæð 1.701.360.kr. Til viðbótar voru gefin virðyrði fyrir 800 þúsund krónum til viðbótar til greiðslu skólagjalda á næstu misserum. Styrkirnir skiptast þannig:
A) Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra. – alls kr. 700.000
- Brynja Brynleifsdóttir starfsmaður Þjónustu og þekkingamiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga: Samþykkt að veita styrk til greiðslu skólagjalda að upphæð allt að kr. 1.200.000 yfir 3 annir..
- Ásdís Þórðardóttir starfsmaður Þjónustu og þekkingamiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga: Til að sækja norræna fagraðstefnu í punktaletri. 150.000 kr.
- Nedelina Ivanova starfsmaður Samskiptamiðstöðvarinnar: Námskeið í hæfnismati á börnum með meðfædda samsetta sjón og heyrnarskerðingu, 150.000 kr.
B) Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins. – alls kr. 181.360
- Arnheiður Björnsdóttir: Enskunámskeið 54.000 kr.
- Lilja Sveinsdóttir: Norskunámskeið 27.360 kr.
- Steinars Eyþórs Valssonar til greiðslu á skólagjöldum í tölvunarfræði í HR kr. 100.000
C) Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum – alls kr. 220.000
- Elma Finnbogadóttir kr. 50.000
- Eyþór Kamban Þrastarson kr. 50.000
- María Hauksdóttir kr. 50.000
- Sigríður Björnsdóttir kr. 20.000
- Sigurjón Einarsson kr. 50.000
D) Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar – alls kr. 600.000
- Haraldur G Hjálmarsson vegna Þátttaka í alþjóðlegri söngvakeppni blindra í Póllandi 18-20. nóv., 150.000 kr.
- Týs Gallerí: Til að bæta aðgengi sjónskertra að íslenskri myndlist með sjónlýsingu.450.000 kr.
Styrkþegum eru færðar hamingjuóskir í þeirri von og vissu að styrkirnir eigi eftir að koma að góðum notum.