Sjóðurinn Blind börn á Íslandi
Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna á Íslandi allt að 18 ára aldri. Sjóðurinn veitir einungis styrki vegna atburða og/ eða hluta sem eru annars ekki styrktir af almannatryggingum, félagsþjónustu sveitafélaga eða af öðrum stofnunum eða sjóðum sem koma að málum blindra og sjónskertra barna.
Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á Fyrsta vetrardag næstkomandi sem er 26.október 2013. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 24.október 2013
Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða á netfangið klara@blind.is Umsóknir skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um.