Iva Marin sigrar í ritgerðarsamkeppni um frið

Markmiðið með keppninni er að hvetja ungmenni til að hugsa um frið, sjá heiminn í stærra samhengi og að leggja sitt af mörkum í friðarumræðunni. Þema keppninnar er “Kraftur friðarins”

Á myndinni eru frá vinstri: Sandra, Ólafur Einar og Íva Marín með viðurkenningarskjölin sínhafinnVið verðlaunaafhendingu í Lionsheimilinu í Reykjavík voru tvö önnur börn einnig heiðruð og þeim þakkað fyrir þeirra ritgerðir, en það eru þau Ólafur Einar Ólafsson og Sandra Sif Gunnarsdóttir. Á myndinn eru frá vinstri Sara, Ólafur Einar og Íva Marin.

Alþjóðasamband Lionsklúbba stendur fyrir keppninni um allan heim, í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar – UNESCO, sem þáttur í friðaruppeldi barna og unglinga. Íslenska vinningsritgerðin hennar Ívu Marínar hefur verið þýdda á ensku og send í alþjóðlegu keppnina, en úrslit hennar verða kynnt í lok júní. Lionshreyfingin starfar í 206 þjóðlöndum, með 1,4 milljónir félagsmanna. Ísland er einn hlekkur í þessari stóru keðju með 2.400 Lionsfélaga í 90 klúbbum um allt land.

Samkeppni um gerð friðar-veggspjalds hefur verið haldin árlega í rúm 20 ár. 11–13 ára ungmennum er gefinn kostur á að tjá sig í myndlist og túlka sínar hugmyndir um frið, friðarboðskap og framtíðarsýn, í litum, línum og formum. Um fjórar milljónir ungmenna í yfir 100 löndum hafa tekið þátt í þessari samkeppni Lions. Nú er blindum og sjónskertum ungmennum gefið tækifæri til að taka þátt í friðarumræðunni með ritgerð.


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björt Yngvadóttirsími 896 7097, netfang gudrun@hraunfolk.net