Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna á Íslandi allt að 18 ára aldri. Sjóðurinn veitir einungis styrki vegna atburða og eða hluta sem eru annars ekki styrktir af almannatryggingum, Svæðaskrifstofu málefna fatlaðra, félagsþjónustu sveitafélaga eða af öðrum stofnunum eða sjóðum sem koma að málum blindra og sjónskertra barna
Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum fyrir Sumardaginn fyrsta sem er 21.apríl næstkomandi. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síðar en 19.apríl 2011
Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða á netfangið klara@blind.is Umsóknir skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun vegna þess sem sótt er um.