Ástæður þess að stjórn Blindrafélagsins ákvað að koma á fót hvatningarstyrkjum Blindrafélagsins eru einkum þær að hún telur brýnt að hvetja félagsmenn til að takast á við ný og ögrandi verkefni. Stjórninni hafa borist beiðnir um styrki frá félagsmönnum sem eru að vinna að sérstökum verkefnum á eigin vegum og hefur ekki verið hægt að bregðast við slíkum beiðnum með viðunandi hætti þar sem engar vinnureglur hafa gilt um slíka fjárstyrki. Með veitingu hvatningarstyrkja einu sinni á ári, vill stjórnin koma öllum slíkum styrkbeiðnum í einn farveg.
Hver styrkur getur numið allt að 300.000 kr. en heildarupphæð allra styrkja að þessu sinni má nema 1.500.000 kr.
Umsóknir um styrki skulu berast til ráðgjafa Blindrafélagsins á sérstökum umsóknareyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu félagsins og á heimasíðu þess.
Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl 2008 og stefnt er að því að styrkjum verði úthlutað á aðalfundi félagsins, 18. maí 2008.
Ákvarðanir um veitingu og upphæð styrkja verða teknar af sérstakri þriggja manna úthlutunarnefnd sem þegar hefur verið skipuð og í sitja eingöngu utanfélagsmenn.
Sjá nánar lýsingu á Hvatningarstyrkjum Blindrafélagsins undir vefslóð hér neðar ásamt úthlutunarreglum sem væntanlegir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel.
Hvatningarstyrkir Blindrafélagsins
Úthlutunarreglur Hvatningarstyrkja
Umsóknareyðublað
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til framkvæmdastjóra eða ráðgjafa Blindrafélagsins.