Æfingar hefjast í markbolta

Samstarf Blindraféalgsins og Íþróttaféalgs fatlaðara í Reykjavík.

Laugardaginn 5. október næstkomandi hefjast markbolta (Goalball) æfingar á vegum Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík og Blindrafélagsins. Markbolti er boltaíþrótt sem stunduð er á velli á stærð við blakvöll og ætluð blindum og sjónskertum en allir getað stundað þessa skemmtilegu íþrótt.


Markboltavöllum með leikendum.
Markbolti nýtur síaukinna vinsælda og er orðin mjög stór íþróttagrein á Ólympíumóti fatlaðra.

Æfingar verða á laugardögum í íþróttahúsi ÍFR að Hátúni í Reykjavík frá kl.11 til 12.  Eftir markboltaæfingarnar geta eldri iðkendur farið í þreksalinn milli kl. 12 til 13 til að stunda líkamsrækt. Ingóflur Arnarsson og Ragna Baldvinsdóttir verða þjálfarar við æfingarnar en Ingólfur er þaulreyndur í markbolta og Ragna er meistaranemi í Íþróttafræðum við Hákskóla Íslands. Engin æfingagjöld verða rukkuð fram að áramótum meðan tilraunaverkefnið stendur yfir.

Allar nánari upplýsingar og skráning á markbolta æfingarnar eru hjá Halldóri Sævari Guðbergssyni á halldor@midstod.is eða í síma 8605810.