Blindrafélagið viðurkennir nám í Hringsjá og námskeið sem afla atvinnumöguleika og hæfni félagsmanna. Sami einstaklingur fær aðeins einn styrk úr hverri úthlutun þó svo hann stundi nám í fleiri en einni viðurkenndri skólastofnun. Hægt er að sækja um rafrænt á heimasíðu félagsins www.blind.is en einnig liggja umsóknareyðublöð frammi á skrifstofunni. Þeir sem óska eftir umsóknareyðublöðum eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins í síma eða með netpósti á netfangið blind@blind.is Öllum þeim sem þess óska verða send umsóknareyðublöð.
Umsóknarfrestur er til 10.október 2008
Meðfylgjandi gögn:
Umsókninni skal fylgja staðfesting á skólavist ásamt upplýsingum um námskostnað.