Tilkynning til allra félagsmanna
5. október, 2020
Vegna neyðarstigs almannavarna hefur skrifstofa Blindrafélagsins gripið til eftirfarandi ráðstafana er varða umferð um skrifstofu félagsins og hús Blindrafélagsins:
-
Skrifstofa Blindrafélagsins er læst. Fólk er beðið að hringja í félagið ef það vantar upplýsingar eða aðstoð.
-
Ef fólk á erindi í hús félagsins er grímu og hanskaskylda ávallt þar sem ekki er hægt að tryggja 1 metra regluna.
-
Opið hús verður lokað fyrir gestum í sal en dagskrá verður send út í Vefvarpi félagsins. Við hvetjum því félagsmenn að kveikja á Vefvarpinu kl. 13:00 á þriðjudögum og fimmtudögum og hlusta á dagskránna undir liðnum „Efni frá Blindrafélaginu“ og „Bein útsending úr sal félagsins“.
-
Starfsfólk skrifstofunnar hefur verið skipt í vinnu hópa og flestir sem geta unnið heima eru að gera það.
Þessar ákvarðanir eru teknar með nýjar sóttvarnarreglur í huga og er ætla að verja heilsu okkar allra. Ekki fara í óþarfa erindi. Fylgjum fyrirmælum Almannavarna og Sóttvarnalæknis og sínum samstöðu í þessum aðgerðum. Þvoum okkur um hendurnar og ef vatn og sápa eru utan seilingar er gott að nota handspritt.
Starfsfólk Blindrafélagsins.
-
5. ágúst, 2020
-
21. júlí, 2020
-
12. júní, 2020