Tilkynning frá stjórn Blindrafélagsins um aðalfund félagsins, laugardaginn 11. maí 2013.

Stjórn Blindraféalgsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi boðar til aðalfundar félagsins laugardaginn 11. maí 2013  í samkomusal félagsins að Hamrahlíð 17 kl. 13:00 síðdegis. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.

Samkvæmt lögum Blindrafélagsins skulu árlega kosnir til tveggja ára, tveir stjórnarmenn og tveir varamenn í stjórn.
Minnt er á að framboðum til stjórnar skal skila til skrifstofu félagsins eigi síðar en þremur vikum fyrir boðaðan aðalfund og rennur því framboðsfrestur út kl. 13:00 síðdegis laugardaginn 20. apríl n.k.

Vakin er athygli á því að sá/sú sem býður sig fram til stjórnar er ekki sjálfkrafa í kjöri í annað embætti en það sem hann/hún býður sig fram til. Vilji menn bjóða sig fram í fleiri en eitt embætti, þurfa þeir að taka það sérstaklega fram.

Framboðum má skila á venjulegu letri, punktaletri eða með rafrænum hætti.  Senda má inn framboð með símbréfi í síma 525 0001 eða í tölvupósti til Ólafs Haraldssonar, framkvæmdastjóra Blindrafélagsins á netfangið: olafurh@blind.is

Tillögum til breytinga á lögum félagsins þarf að skila til skrifstofu fyrir sama tíma, (þ.e. 20. apríl 2013, kl. 13:00).

Skemmtidagskrá á vegum skemmtinefndar verður að loknum aðalfundinum 11. maí.Skemmtidagskráin verður nánar auglýst síðar.