Kl. 10.00 fimmtudaginn 22 apríl rann út framboðsfrestur til stjórnar Blindrafélagsins. Á aðalfundi félagsins 13. maí 2010 á að kjósa til næstu tveggja ára: Formann félagsins, tvo stjórnarmenn í aðalstjórn og tvo varamenn í stjórn.
Kjörnefnd félagsins, þau Bessi Gíslason, Brynja Arthúrsdóttir og Ragnar R Magnússon hafa komið saman og farið yfir þau framboð sem borist hafa.
Eftirtaldir einstaklingar gefa kost á sér sem formaður Blindrafélagsins til næstu tveggja ára:
Friðgeir Jóhannesson
Kristinn Halldór Einarsson
Eftirtaldir einstaklingar gefa kost á sér í aðalstjórn Blindrafélagsins til næstu tveggja ára:
Bryndís Snæbjörnsdóttir
Lilja Sveinsdóttir
Sigþór U Hallfreðsson
Eftirtaldir einstaklingar gefa kost á sér í varastjórn til næstu tveggja ára:
Bryndís Snæbjörnsdóttir
Lilja Sveinsdóttir
Rósa Ragnarsdóttir
Þorkell Jóhann Steindal