Þórsteinssjóður auglýsir eftir umsóknum

Ákveðið hefur verið að veita styrk úr Þórsteinssjóði á árinu 2008.

Áætlað er að úthlutun fari fram 3. desember 2008 við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands.

Tilgangur Þórsteinssjóðs er í fyrsta lagi að styrkja blinda og sjónskerta til náms við Háskóla Íslands. Í öðru lagi er markmið sjóðsins að efla rannsóknir á fræðasviðum sem aukið geta þekkingu á blindu og skertri sýn, einkum í félags- og hugvísindum.

Í ár verða veittir námsstyrkir til blindra eða sjónskertra stúdenta sem stunda nám eða hyggja á nám við Háskóla Íslands. Styrkurinn er fyrir háskólaárið 2009-2010. Heildarfjárhæð úthlutaðra styrkja er kr. 1.000.000

Í umsókninni þurfa eftirtalin atriði að koma fram:

  1. Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
  2. Helstu atriði úr náms- og/eða starfsferli umsækjanda.
  3. Hvaða nám viðkomandi stundar eða hyggst stunda við Háskóla Íslands.
  4. Upplýsingar um námsferil og námsárangur í framhaldsskóla eða háskóla eftir því sem við á.
  5. Meðmæli frá kennurum og/eða atvinnurekendum.
  6. Áætlun um námsframvindu.


Hámarkslengd umsóknar eru þrjár síður. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórnin áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta með öðrum hætti.

Umsóknarfrestur er til 25. nóvember 2008. Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: ingaein@hi.is.

Frekari upplýsingar um styrkveitingu og úthlutun er að finna á vefslóðinni: http://www.hi.is/is/skolinn/styrktarsjodir. Einnig hjá Ingibjörgu Einarsdóttur, verkefnisstjóra, ingaein@hi.is, sími 525-4000.

Þórsteinssjóður var stofnaður við Háskóla Íslands 6. desember 2006 af Blindravinafélagi Íslands, til minningar um Þórstein Bjarnason, stofnanda Blindravinafélagsins. Tilgangur Þórsteinssjóðs helgast af æviverki Þórsteins að efla líf blindra og sjónskertra á íslandi.