Stuðningur til sjálfstæðis auglýsir eftir styrktarumsóknum

Stuðningur til sjálfstæðis - styrktarsjóður Blindravinafélags Íslands og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi tekur á móti umsóknum fram til 1 apríl 2013 vegna styrkja fyrir fyrri hluta 2013 .

Auglýst ef eftir styrkjum í eftirfarandi styrktarflokkum:

A)   Náms- ferða- og ráðstefnustyrki til fagfólks sem starfa með blindum og sjónskertum einstaklingum, eða vinna að hagsmunamálum þeirra.

B)  Náms-, ferða-, endurhæfingar- og ráðstefnustyrki til félagsmanna Blindrafélagsins.

C) Styrki til félagsmanna Blindrafélagsins til kaupa á hjálpartækjum og tölvubúnaði.

D) Styrki til verkefna sem eru hagsmunum blindra og sjónskertra til framdráttar.

Skipulagsskrá, úthlutunarreglur,umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar má nálgast hér.