Ágætu félagar Blindrafélagsins og aðrir sem þetta heyra eða lesa!
Við undirrituð skipum nefnd sem ætlað er að búa til og gefa út staðla fyrir punktaletur á Íslandi.
Nefndin starfar á vegum Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, en Blindrafélagið á einn fulltrúa í henni.
Nefndin hefur á sinni könnu margvísleg verkefni, s.s. að búa til og kynna staðal fyrir 6 og 8 punkta letur, setja upp verklagsreglur varðandi útprentun bóka og annars efnis á punktaletri, innleiða kerfi til að auðvelda stærfræðikennslu á punktaletri, kanna upptöku íslensk styttingakerfis o.fl.
Forgangsverkefni nefndarinnar er að búa til og hanna 6 og 8 punkta staðlana og koma þeim í umferð eins fljótt og auðið er.
Allir bókstafir og tölustafir eru þekktir og engin áform eru uppi um breytingar þar á, en hins vegar eru ýmis tákn og merki á reiki, t.d. at merkið, prósentumerkið, dollaramerki, merki fyrir evrur o.s.frv.
Mjög nauðsynlegt er að staðla þessi merki og tákn á punktaletri hér á landi.
Til þess að sem mest sátt ríki um þessa staðla viljum við vera í sem mestum tengslum við það fólk sem notar punktaletrið og aðra sem kunna að hafa skoðanir á því.
Í því skyni boðum við til fundar um 6 og 8 punkta punktaletursstaðlana mánudaginn 14. desember nk. Kl. 17.00.
Fundurinn verður haldinn í sal Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, 2. hæð.
Til umræðu að þessu sinni verða drög nefndarinnar að 6 og 8 punkta letri fyrir íslensku. 6 punkta letrið mun notast í prentuðu efni og 8 punkta letrið er hugsað bæði sem tölvuletur fyrir punktaletursskjái og önnur jaðartæki og einnig hugsanlega til prentunar í framtíðinni.
Fundarmenn munu fá prentuð eintök af stöðlunum og geta komið með uppástungur um breytingar eða viðbætur. Ef tími vinnst til gætu einnig skapast umræður um endurvakningu íslensks styttingakerfis en það er næst á dagskrá nefndarinnar.
Notendur punktaleturs eru sérstaklega hvattir til að mæta, en einnig eru þeir sem kenna letrið, foreldrar eða aðrir þeir sem þekkja það hvattir til að mæta.
Þeir sem sjá sér ekki fært að mæta á fundinn en vilja fá eintak af stöðlunum til umsagnar vinsamlegast hafið samband við Ágústu á netfangið ag@blind.is.
Staðlarnir verða ekki tilbúnir í prentuðu formi fyrr en um miðjan desember og þá verður hægt að óska eftir eintökum af þeim á því formi.
Virðingarfyllst
Birkir R. Gunnarsson, Ágústa Gunnarsdóttir og Ásdís Þórðardóttir.