Mötuneyti opnað í Hamrahlíð 17

Mötuneytið hefur nú verið starfrækt í nokkra daga og hefur almennt verið gerður góður rómur að matnum sem í boði hefur verið. Mæting hefur verið allt upp í um 50 manns þegar best hefur verið.

Mötuneytið er opið öllum félagsmönnum Blindrafélagsins og starfsmönnum á Hamrahlíð 17. Eingöngu hádegisverður er í boði.